Dularfull plötudreifing vekur athygli víða um land.

Vegfarendum við Lækjargötu í Reykjavík brá heldur betur í brún í morgun þegar nýrri hljómplötu Vitringanna þriggja hafði verið komið fyrir á umferðareyju við fjölfarin umferðarljós.
Platan, sem er nýkomin til landsins, virðist nú vera farin að rata á ólíklegustu staði og eru uppi vangaveltur um hvort um skipulagða dreifingu sé að ræða. Samkvæmt upplýsingum sem borist hafa er tilgangurinn að koma plötunni í hendur landsmanna, án tillits til búsetu, aldurs eða tónlistarsmekks.
Ekki liggur fyrir hver stendur að baki framtakinu, en ljóst er að einhver hefur tekið dreifingarmál Vitringanna föstum tökum. Vegfarendur í miðborg Reykjavíkur hafa sýnt uppátækinu töluverðan áhuga og mun einn ökumaður hafa hægt verulega á sér þegar hann áttaði sig á því hvað stóð á umferðareyjunni.
Vitringarnir sjálfir segjast ekki hafa neinar skýringar á málinu.
„Við vissum auðvitað að platan væri komin til landsins, en áttum ekki von á því að hún færi strax að standa sjálfstæðan vörð um umferðarmannvirki höfuðborgarinnar,“ segir einn Vitringanna.
Ekki er útilokað að fleiri eintök dúkki upp á næstu dögum, jafnvel á stöðum þar sem enginn hefur sérstaklega óskað eftir þeim.
Landsmenn eru hvattir til að hafa augun opin.
