← Slúðrið

Frumsýningarvikan er hafin – og Vitringarnir gefa út sitt fyrsta lag!

Frumsýningarvikan er hafin – og Vitringarnir gefa út sitt fyrsta lag! — mynd 1

Margra mánaða vinna er að líta dagsins ljós. Föstudagurinn 27. nóvember verður sannkallaður hátíðisdagur hjá Vitringunum þremur þegar ný jólasýning verður frumsýnd í Silfurbergi í Hörpu og fyrsta lag Vitringanna kemur út.

Á miðnætti aðfaranótt föstudags kemur lagið Pakkaðu mér inn út á öllum helstu streymisveitum. Um morguninn mæta Vitringarnir í viðtal til Ívars Guðmundssonar á Bylgjunni þar sem lagið verður frumflutt í útvarpi.

Um kvöldið flytja Vitringarnir lagið í fyrsta sinn í sjónvarpi í þættinum Vikan með Gísla Marteini á RÚV.

Leyndinni verður loksins aflétt

Undanfarna mánuði hefur stór hópur listafólks og fagfólks unnið hörðum höndum að jólasýningu ársins. Handrit, tónlistarútsetningar, leikmynd, búningar og ótal leyndarmál hafa verið í vinnslu og nú er komið að því að hleypa áhorfendum inn í jólaheim Vitringanna á ný.

Mikil leynd hefur hvílt yfir leynigestum ársins en þeir verða afhjúpaðir á frumsýningunni í Hörpu á föstudagskvöld. Vitringarnir hafa, þrátt fyrir takmarkaða hæfileika til að þegja, náð að halda nöfnum þeirra leyndum hingað til.

Pakkaðu mér inn!

Fyrsta lag Vitringanna þriggja er glænýtt íslenskt jólalag eftir Friðrik Ómar. Lagið sækir innblástur í sígildan hljóðheim jólalaganna frá sjöunda áratugnum og ber með sér gleði, hátíðarstemningu og einfaldan en mikilvægan jólaboðskap:

Besta jólagjöfin er samveran.

Vitringarnir eru afar þakklátir fyrir þær frábæru viðtökur sem sýningin hefur þegar hlotið og hlakka til að taka á móti þúsundum gesta í Hörpu og Hofi á aðventunni.

Nú styttist í að ljósin verði dempuð, hljómsveitin telji í og leyndarmálin verði afhjúpuð.

Frumsýningarvikan er hafin. Jólin mega koma!

Viltu fá að vita allt fyrst?
Skráðu þig á póstlistann okkar