Gísli Marteinn fékk fyrstu svuntuna - Matreiðslubók á næsta ári?


Það var söguleg stund í þættinum Vikan með Gísla Marteini á RÚV þegar Jógvan Hansen afhenti Gísla Marteini Baldurssyni fyrstu aðventusvuntu Vitringanna þriggja. Gísli tók við svuntunni með slíkum fögnuði að nú eru jafnvel uppi áform um útgáfu matreiðslubókar fyrir næstu jól.
Svuntan, sem er búin 24 veglegum hólfum, hefur vakið mikla athygli enda möguleikarnir nánast ótakmarkaðir.
Samkvæmt óstaðfestum heimildum hyggst Gísli fylla hólfin af ýmsu góðgæti úr Vesturbænum, þar sem hann hefur um árabil verið einn helsti menningar- og kaffihúsafrömuður hverfisins.
Meðal þess sem gæti ratað í hólfin eru súrdeigsbrauð, kaffibaunir frá Kaffi Vest, heimagert pestó, ítalskt sjávarsalt og jafnvel eitt og eitt avókadó.
Ekki er þó ljóst hvort Gísli ætli að geyma kaffið í svuntunni allan desember eða brugga það jafnóðum.
Matreiðslubók væntanleg fyrir jólin 2027
Svo ánægður er Gísli með nýju svuntuna að hann mun nú, samkvæmt heimildum Vitringanna, vera farinn að leggja drög að sinni fyrstu matreiðslubók.
Bókin ber vinnuheitið „24 dagar í Vesturbænum – frá hafralatte til hamborgarhryggjar“ og er stefnt að útgáfu hennar fyrir jólin 2027. Þar mun Gísli meðal annars kenna landsmönnum hvernig útbúa megi fjögurra rétta jólamáltíð úr því sem kemst fyrir í einni aðventusvuntu. Sérstakur kafli verður helgaður því hvernig hægt er að halda glæsilegt jólaboð án þess að fara austur fyrir Lækjargötu.
Vitringarnir í skýjunum
Vitringarnir þrír segjast himinlifandi með viðtökurnar og telja að með þessu hafi aðventusvuntan endanlega öðlast sess meðal mikilvægustu menningarverðmæta þjóðarinnar. „Við vissum að svuntan væri góð, en að hún myndi leiða til bókaútgáfu strax á fyrsta sólarhring kom okkur verulega á óvart,“ segir í tilkynningu frá Vitringunum.
Aðventusvunta Vitringanna fæst í vefverslun þeirra á www.vitringarnir3.is/verslun.
