Hvernig tryggir þú þér miða í forsölu?
Forsalan á Vitringana þrjá verður 28. ágúst kl. 11:00 fyrir þá sem skrá sig á póstlistann hér á heimasíðunni okkar. Það hafa verið mikil forréttindi fyrir okkur að finna fyrir ört stækkandi hópi fylgjenda í gegnum heimasíðuna og því ákváðum við að veita okkar fólki forskot í forsölunni í gegnum póstlistann. Forsalan gildir bæði fyrir Hörpu og Hof og munu þeir sem skráðir eru á póstlistann fá tölvupóst með tenglum á annars vegar salinn í Hörpu og hinsvegar salinn í Hofi. Eins og áður sagði fer forsalan af stað föstudaginn 28. ágúst kl. 11:00. Verið viðbúin því tölvupósturinn kemur á slaginu 11:00! Hlökkum til að sjá ykkur!

