Miðasala hefst 1. september - aukasýningar fara í sölu!
Eftir vel heppnaða forsölu fyrir póstlista Vitringanna hefst almenn sala 1. september kl. 11:00. Ákveðið hefur verið að bæta við fleiri aukasýningum bæði í Hörpu og Hofi. Alls eru 18 sýningar komnar í sölu og ættu því allir að geta fundið dagsetningu og tíma við sitt hæfi. Sýningin er tvisvar 50 mínútur og hléið er 20 mínútur. Sem fyrr verður ýmiss skemmtilegur varningur til sölu í anddyrinu og Vitringarnir munu árita og hitta gestina eftir hverja sýningu. Við hvetjum ykkur til að skipuleggja samveru á aðventunni með ykkar besta fólki og minnum á glæsilega veitingastaði í Hörpu, Hnoss og La Prima Vera. (www.laprimavera.is /harpa)
Það er um að gera að bóka sér borð og mæta tímanlega.
Góða skemmtun!

