Örfá sæti laus hjá Vitringunum þremur í Hörpu og Hofi!
Það stefnir í sannkallaða jólagleði hjá Vitringunum þremur, Friðriki Ómari, Jógvani Hansen og Eyþóri Inga, en nú eru aðeins örfá sæti laus á jólasýningar þeirra í Hörpu og Hofi á Akureyri.
„Við erum auðvitað í skýjunum með þessar frábæru viðtökur. Handritið er klárt og hefur aldrei verið betra. Það er ótrúlega gaman að finna hvað fólk hlakkar til að koma og eiga með okkur góða stund á aðventunni,“ segir Friðrik Ómar. „Við ætlum að gera allt vitlaust, á fallegan og jólalegan hátt að sjálfsögðu,“ bætir Jógvan Hansen við og hlær.
Eyþór Ingi hvetur fólk til að bíða ekki of lengi með að tryggja sér miða.
„Það er fátt skemmtilegra en að koma saman, hlæja og syngja á aðventunni. Við lofum frábærri skemmtun, mikilli tónlist og sannkallaðri jólastemningu.“
Nú er því hver að verða síðastur að tryggja sér gleðina á aðventunni með Vitringunum þremur!





