Vitringarnir 3 voru sennilega frá austurlandi. Ekki austurlöndum!
Það hefur lengi verið haldið fram að vitringarnir þrír hafi komið frá Austurlöndum. Þetta er misskilningur sem hefur fengið að lifa furðulega lengi. Rétt er að þeir komu að austan. En ekki svona langt að austan.
Nýjustu heimildir benda nefnilega eindregið til þess að Vitringarnir 3 hafi verið frá Austurlandi. Nákvæm staðsetning er enn á huldu, enda heimildir frá þessum tíma brotakenndar og vegakerfið ekki upp á marga fiska. Fyrir utan það voru þeir afa áttavilltir í grunninn. Einn þeirra, virðist reyndar hafa villst lítillega af leið. Hann kom með Norrænu frá Færeyjum til að freista gæfunnar sem förðunarfræðingur á Íslandi. Sú starfsgrein var hreinlega ekki til á þessum tíma og hvað þá fyrir færeyskan karlmann. Hann hefur samt verið á Íslandi síðan. Hann kom þó ekki tómhentur, heldur lagði vel í púkkið. Þetta mjög svo sérstaka tríó kom svo færandi hendi með gull, reykelsi og skerpikjöt. Í aldanna rás hafa nöfnin Kaspar, Melkíor og Baltasar einnig ratað inn í söguna. Fræðimenn Vitringanna hafa þó ekki útilokað að um síðari tíma þýðingarvillu sé að ræða. Mörður Árnason er að skoða málið. Kannski hétu þeir einfaldlega Jógvan, Eyþór og Friðrik. Það sem við vitum með vissu er að þeir þrír lögðu af stað, fundu stjörnuna, Friðrik fann þó langflestar, og mættu með sitt besta. Sú hefð lifir enn góðu lífi.
Í desember halda Vitringarnir 3 því aftur af stað — að þessu sinni heimækja þeir Hörpu og Hof.
Og sem betur fer er leiðin þangað aðeins betur merkt. Með hjálp google maps:)

