← Slúðrið

Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október!

Vitringarnir þrír, Friðrik Ómar, Jógvan Hansen og Eyþór Ingi, færa nú út kvíarnar og opna eigin vefverslun föstudaginn 30. október. Þar verður hægt að nálgast ýmsan skemmtilegan varning tengdan þremenningunum og vinsælum jólasýningum þeirra.

„Við höfum verið að undirbúa þessa verslun um nokkurt skeið og langaði að búa til eitthvað skemmtilegt sem fólk gæti tekið með sér heim úr ævintýrinu okkar. Þetta er auðvitað allt saman gert með hæfilegum skammti af húmor og jólagleði,“ segir Friðrik Ómar.

Í vefversluninni verður meðal annars að finna hina svokölluðu Aðventusvuntu, sem er jóladagatal með 24 vösum fyrir litlar gjafir og óvænta glaðninga. Svuntuna má nota ár eftir ár og fylla hana nýjum glaðningum fyrir hver jól.

„Það er nú einu sinni þannig að við erum komnir á þann aldur að maður þarf að hugsa um endinguna á hlutunum. Þetta er að minnsta kosti jóladagatal sem klárast ekki á aðfangadag,“ segir Jógvan Hansen og hlær.

Meðal þess sem verður í boði er einnig sérstök vínylplata Vitringanna þriggja með vel völdum upptökum frá jólatónleikum þeirra árin 2024 og 2025.

„Þessi plata er alveg einstök stemningsplata. Við völdum lög og upptökur sem fanga gleðina og stemninguna á tónleikunum okkar. Ég sé hana alveg fyrir mér á fóninum á meðan fólk bakar smákökur, sker út laufabrauð eða skreytir jólatréð. Þetta er eiginlega fullkomin hljóðrás fyrir aðdraganda jólanna,“ segir Eyþór Ingi.

Friðrik segir vefverslunina skemmtilega viðbót við allt það sem sé á döfinni hjá hópnum.

„Við höfum lagt mikla vinnu í að skapa ákveðinn heim í kringum Vitringana þrjá. Vefverslunin er hluti af því. Við viljum að fólk geti tekið þátt í gleðinni, hvort sem það kemur á sýninguna eða ekki.“

Og þegar þremenningarnir eru spurðir hvort þeir ætli sjálfir að sjá um að pakka inn pöntunum stendur ekki á svörunum:

„Við erum auðvitað Vitringarnir þrír. Við kunnum að koma með gjafir. Hitt er svo annað mál hvort þær berist á réttum tíma!“

Vefverslun Vitringanna þriggja opnar föstudaginn 30. október á www.vitringarnir3.is.

Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október! — mynd 1Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október! — mynd 2Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október! — mynd 3Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október! — mynd 4Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október! — mynd 5Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október! — mynd 6Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október! — mynd 7Vitringarnir þrír opna vefverslun 30. október! — mynd 8

Viltu fá að vita allt fyrst?
Skráðu þig á póstlistann okkar