Vitringarnir 3 koma til byggða í lok nóvember og færa landsmönnum öllum, til sjávar og sveita, fruntalega jólaskemmtun að vanda.

Vinirnir og gullbakarnir Eyþór Ingi, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen stíga á stokk í nýrri og sprenghlægilegri sýningu sem er uppfull af gríni, grúvi og gæsahúði! (Afsakið. Jógvan getur ekki fallbeygt orðið Gæsahúð rétt.)

Sem fyrr munu óvæntir gestir stíga á svið en tónlistarstjórinn Ingvar Alfreðsson mun stjórna hljómsveit Vitringanna af sinni vestfirsku snilld.

Líkt og áður er sýningin ekki við hæfi miðaldra kvenna.

Skráðu þig á póstlista Vitringanna til að tryggja þér aðgengi að forsölunni sem verður 28. ágúst kl. 11:00 á vitringarnir3.is

Almenn miðasala hefst 1. september kl. 11:00. Ekki láta þig vanta, drífa sig og panta!

Sýningar sem fara í sölu 28. ágúst kl. 11:00:

HARPA:
27. nóvember kl. 21:00 – Frumsýning
28. nóvember kl. 16:00
28. nóvember kl. 19:00
28. nóvember kl. 22:00
4. desember kl. 19:00
5. desember kl.16:00
5. desember kl. 19:00
5. desember kl. 22:00
18. desember kl. 19:00
19. desember kl. 16:00
19. desember kl. 19:00
19. desember kl. 22:00

HOF:
11. desember kl. 19:00
12. desember kl. 19:00
12. desember kl. 22:00