Vitringarnir og La Primavera settu saman gómsætan matseðil sem verður á boðstólnum á aðventunni í Hörpu. La Primavera er einstakur veitingastaður staðsettur á fjórðu hæðinni í Hörpu með útsýni yfir höfnina. Til að forðast allt stress, ys og þys mælum við eindregið með því að þið mætið tímanlega í húsið, bókið ykkur borð og njótið fyrir og eða eftir sýninguna okkar. Þú hefur nokkra valmöguleika á seðlinum okkar en allir fá glas af freyðivíni meðan þau kynna sér matseðilinn sem er að þessu sinni á íslensku og færeysku.
Smelltu hér til að lesa matseðilinn okkar: VITRINGASEÐILL

Panta borð hér!


Hér á þessu myndskeiði fer Jógvan yfir seðilinn á færeysku. Sjón er sögu ríkari!